Komnir áfram!

Ef danir vinna serba, sem verður að teljast líklegt, þá eru góðar líkur á að við séum komin áfram. Nema serbar geri jafntefli við austurríkismenn og við töpum stórt gegn dönum.

Það er mjög miklilvægt samt sem áður að vinna dani og fara upp í milliriðilinn með þrjú stig.

En mér fannst fáránlegt á síðustu sekúndunum gegn Austurríki þegar dómarinn stoppaði tímann strax og þeir skoruðu. Við vorum ekkert að tefja. Taldi mikið.


mbl.is Klúðruðu stigi í lokin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til verndar samkeppnisaðila

Sigurjón og Jói Ben fá sér pulsu

Árið 1989 rak ég kjötvinnsluna Matargæði, sem ég stofnaði ásamt vini mínum Grími kokk. Við seldum unnar kjötvörur í allar búðirnar hér sem þá voru 6 talsins. Við höfðum mikið að gera og seldum mest vörur sem fóru í kjötborðin hjá búðunum. Tanginn og Kaupfélagsbúðirnar voru stóru búðirnar síðan voru 3 minni verslanir. Þá var gerð á vegum Neytendasamtakanna leynileg könnun á gæðum kjötfars í búðum. Var það þannig unnið hér í Vestmannaeyjum að kona fór í verslanirnar og keypti kjötfars og geymdi í bílnum sínum. Síðan var það sent með flugi mörgum klukkustundum seinna til Reykjavíkur í sýnakönnun. Ekki vissi ég eða nokkur annar af þessari könnun, né að okkur hafi verið kynnt niðurstaðan. Hún kom sem frétt á Stöð 2 og svo í flestum fjölmiðlum á eftir. Þá höfðu litlu búðirnar 3 hér í Eyjum komið illa út, en Tanginn og Kaupfélagið voru í lagi. En í fjölmiðlunum var þessu slegið upp að hér hafi könnunin komið hlutfarslega verst út á landinu. Ég lenti í því að reyna að svara fyrir þetta þar sem ég var framleiðandinn, en ég átti erfitt með það þar sem ég vildi engan særa. Tanginn og Kaupfélagið seldu það mikið magn að þeir fengu alltaf nýtt á hverjum morgni, en litlu búðirnar voru að nýta það sem eftir var daginn eftir. Að sjálfsögðu hefði þessi könnun átt að vera unnin af Heilbrigðiseftirlitinu og þeir síðan látið fyrirtækin vita og þetta hefði verið lagað. En þarna voru einhverjir í gervistörfum að réttlæta vinnuna sína og slá um sig á kostnað smælingjanna. Umfjöllunin varð mikil og aðstoðarverslunarstjóri Tangans tilkynnti það í fjölmiðlum að Tanginn ætlaði ekki að selja kjötfars frá Matargæði.

Þessi saga rifjaðist upp fyrir mér þegar verðkönnun á vegum ASÍ var gerð hjá hjólbarðaverkstæðum á landinu. Hún var fljótfærnislega og illa unnin. Fyrir tveimur dögum kom til mín kona og bað mig að svara könnun og ég yrði að gera það eins og skot. Þar átti ég að svara til um það hvað kostaði að umfelga eftirtaldar bíltegundir. Ég benti henni á að verðlagning okkar miðast við stærðir felganna og þessar bíltegundir gætu verið með margbreytilegar stærðir. Þannig er ekki sama stærð undir öllum Pajero, það fer t.d. eftir árgerð. Konan, sem var bara að gera það sem henni var lagt fyrir, gat ekki svarað mér þegar ég vildi fá nánari útlistun á því. Síðan var spurt um verð á dekkjum með sama hætti og með vinnuliðin. Þar komum við að því sama, stærðirnar skipta öllu máli varðandi verð. Spurningar voru þar líka ekki faglegar t.d. var spurt um verð á negldum harðkornadekkjum.

Tveimur dögum eftir að könnunin var gerð var hún birt í fjölmiðlum. Þar er slegið upp í texta að Áhaldaleigan í Vestmannaeyjum hafi komið verst út. Þar taka þeir bara ákveðna liði út og segja frá þeim. Ég ætti því að vera ánægður, því við Óskar erum í samkeppni og Hjólbarðastofan kom vel út. En ég er það ekki því ég veit betur. Þetta var illa unnin verðkönnun og skora ég á fólk að gera sýnar eigin kannanir.

Hálfum mánuði eftir að kjötfarskönnunin var gerð og safnast hafði upp í frystinum hjá mér hráefni í kjötfars, hringdi Simmi á Tanganum í mig. Hann sagði að ég yrði að fara að setja farsvélina í gang það væru allir að biðja um kjötfars frá okkur. Þennan dag seldi ég 200 kg. af kjötfarsi. Þannig að um 1000 manns borðuðu kjötbollur þann daginn. Já, við stöndum saman í Eyjum, jafnvel þó að það geti kostað okkur niðurgang.

  

Jóla-Hellir

Hellir

Jæja þá er maður búinn að koma seríunum upp og Adda búinn að skreyta inni og baka smákökurnar. Búið að skrifa jólakortin og meira að segja kaupa jólatréð. Mikið skelfing er maður orðinn gamall, allt klárt rúmri viku fyrir jól.

Pétur nágranni minn og vinur sendi mér þessa mynd af Helli. Jói granni (nágranni) nýtur hins vegar ekki skreytinganna þar sem hann var sendur til Reykjavíkur til að uppræta spillinguna.


Leppur

Friðrik eftir síðustu æfinguna

Friðrik leikur í leikriti sem Leikfélagið er að sýna núna yfir jólin, það heitir Grýla gerir uppreisn. Þetta er mjög skemmtilegt barnaleikrit, alla vega hló stelpan sem sat fyrir aftan mig á frumsýningunni allan tímann. Gaman var að sjá hve margir krakkar voru með hlutverk, leikararnir voru sennilega milli 50-60 manns.

Friðrik leikur Lepp og Þórir vinur hans leikur Skrepp.


Siggi sleit hásin

Elísa og Siggi
 

Hann byrjaði vel leikurinn gegn Gróttu í gær. ÍBV liðið var vel stemmt og tilbúið að berjast gegn efsta liðinu. Mjög kalt var í íþróttasalnum og höfðu menn orð á því fyrir leik. Eftir c.a. 10 mín var staðan 3-3 og við í sókn þá misstígur Siggi sig og virtist sem að það væri minniháttar. En miðað við kvalirnar hjá honum hlaut það að vera eitthvað meira. Björgvin Eyjólfs kom svo fljótlega og skoðaði hann og kom þá í ljós að hann hafði slitið hásin. Björgvin fór með honum upp á spítala og kom því í gegn að hann var skorinn strax. Það gæti flýtt batanum.

Leikurinn endaði með eins marks sigri Gróttu og voru þeir heppnir því ÍBV lék mjög vel.

 


Af himnum ofan

Fór upp á Heimaklett með pabba í gær.
Þar hitti ég Höllu og Óla.

Það eru allir að tala um kreppuna og ástandið sem mun fylgja í kjölfarið. Á kaffistofunni var þetta eðlilega aðalmálið og maður þarf að vera að ræða þetta við alla sem koma. Fór svo í heitu pottanna og hélt áfram að tala um þetta þar.

Menn eru reiðir og þetta kemur við okkur öll. Maður missir sig oft og gætir ekki orða sinna. Maður verður að passa upp á þá sem skipta mann máli.

Því kannski fellur lausnin af himnum ofan.

Norðmenn kaupa Drekasvæðið á 6.000 milljarða.

Viðskiptaráðherra gleymdi að reikna með innskattstekjum upp á 550 milljarða.

Evrópusambandið endurgreiðir íslendingum ofreiknaða tolla frá 1989 upp á 700 milljarða.

Decote finnur skallagenið og býr til lif ........

Trú, von og kærleikur..........alla vega fram að jólum!!


Kreppa eða ...

Kynslóðin sem á eftir að rífa okkur upp

Mikið hefur gengið á í efnahagsmálum okkar íslendinga að undanförnu og eiga þessi mál eftir að hafa mikil áhrif. Þetta verður erfitt, en ég er viss um að margt á eftir að breytast til batnaðar.

Mér finnst sérstakt að hlusta á þá sem hafa áhyggjur á að fólkið sem vann í bönkunum muni jafnvel flytjast til útlanda. Þetta er sagt í þeim tón að við hin ættum að hafa áhyggjur af því. Ég er hins vegar á því að réttast væri að senda þau úr landi, þá þegar þau eru búin að sitja jafn lengi og Árni Johnsen á Kvíabryggju.

"Skuldir æðstu stjórnenda Kaupþings vegna hlutabréfakaupa í bankanum voru afskrifaðar skömmu fyrir þjóðnýtingu bankans. Upphæðin sem um ræðir eru fimmtíu milljarðar króna"

Án gríns, þá verður að fara vel yfir þessi mál og komast að því hvort menn hafi með ólöglegum hætti grætt mikla peninga á kostnað okkar hinna og þeirra sem erfa skulu land.

Maður á ekki að gleðjast yfir óförum annara, fyrir slíkt hefnist manni. En það er komin upp sérstök staða í byggðarmálum íslendinga. Reykjavík hefur þanist út undanfarin ár á kostnað landsbyggðarinnar. Þar var partýið sem bankarnir sponseruðu af Því að þeir áttu svo mikinn pening. Margt gott fólk, sem okkur vantar í samfélögin úti á landi, er núna að vakna grútþunnt.

En ástandið sem hálaunafólkið, með miklu ábyrgðina,  hefur komið okkur öll í er erfitt. Fyrir sumt ungt fólk skelfilegt.

Verðmætamatið hjá manni sjálfum verður endurskoðað og maður veltir fyrir sér hvar maður stendur.

Þá sér maður að það sem mestu skiptir kostar ekki neitt!


Daði tvítugur

Jóhanna, Adda og Jói

Daði verður tvítugur þann 5 nóvember. Hann hélt upp á afmælið hér í Eyjum á laugardaginn ásamt frænda sínum honum Óttari sem verður tvítugur þann 7 nóv. Veislan var haldin í Eyjabústöðum og sáu mömmurnar um matinn. Við Jói sáum um allt hittSmile   Fjörið endaði svo Sálarballinu.

Óttar og Daði

Af Daða er allt gott að frétta. Hann stundar nám í Háskóla Reykjavíkur í tölvunarfræði.


oohhh....Þá var kátt í Hellisey..

Helliseyingar

Það var mikil vinna að sjá um Lundaballið, en mikið ofboðslega var það gaman. Fólkið sem kom, 500 manns í mat, var mætt til þess að skemmta sér. Allir svo fínir og það sá varla vín á manni. Allt gekk upp, enda komu margar hendur að. Ég vill fá að þakka þeim fjölmörgu sem lögðu okkur Helliseyingum lið kærlega fyrir.

Kvöldið áður var ég með kynningu á lundalifrapaté niðri í Miðstöð. Fékk ég Sigurjón Ingvars, Helga bróðir og Kalla Haralds til að hjálpa mér. Mari hafði keypt rauðvín og gos til að hafa með. Var ákveðið að ég skildi vera með kynninguna um leið og Jóhann Óli Hilmarsson væri búinn að kynna bók sína Lundann.

Þegar það var komið að okkur þurftum við að hafa hraðar hendur. Ég var búinn að skera niður paté, setja á ristað brauð og raða á bakka. Helgi og Sigurjón voru inní eldhúsi og gerðu næsta bakka kláran, en við Kalli buðum gestum að gjöra svo vel. Sá ég þá að við höfðum gleymt rifsberjasultunni.

Segi ég þá við Kalla; "Kalli, sultan!

Kalli lítur á mig og stekkur inn í eldhús og kemur til baka í rósóttri svuntu af Marý.

 


Gleðilega hátíð

Arngrímur og Sigurjón

Klukkan er10:00. Það er allt að gerast. Kokkarnir eru á fullu. 10 rétta matseðill. Skemmtiatriði klár. Tóti flúinn af eyjunni. Búið að skreyta salinn. Myllan skartar sínum fegursta. Það er eins og maður sé 6 ára á aðfangadagsmorgun. Spennan er mikil.

Við Helliseyingar erum þakklátir öllum þeim sem hafa skráð sig á ballið og sérstaklega þeim sem hafa lagt okkur lið við að búa til rétta stemmningu. Við vonum að dagskráin falli öllum í geð og að menn (Elliðaeyingar) trufli ekki dagskránna. Bjarnareyingar ætla reyna allt til að bæta sig. Hafa þeir verið á söngnámskeiði hjá Guðmundi kantor.

En að sjálfsögðu er maður manns gaman. Gleðilega hátíð!!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband